Gott handverk byrjar hjá fagmanni.
568 1165mmf@malarar.is

Þarftu að mála?

Fáðu fagmann í verkið.

Reglulegt viðhald ver verðgildi fasteignarinnar og kemur í veg fyrir varanlegar skemmdir. Hér sérðu hvernig þú finnur málarameistara, hvað á að standa í tilboði og verksamningi og hvenær best er að hefjast handa.

Veðraðar viðarhurðir með flagnaðri grænni og rauðri málningu
ER KOMINN TÍMI Á VIÐHALD?Góð undirvinna tryggir betri endingu
FRÁ STOFU AÐ FRAMHLIÐ

Hvað þarf að mála?

Sjáðu hvað hvert verk felur í sér í samræmdum verklýsingum félagsins.

FAGMENNSKA Í HVERJU SKREFI

Af hverju málarameistari?

Málarameistarinn er fagmaður sem ber ábyrgð á verkinu, frá ráðgjöf til síðustu umferðar.

  • Fagmaður með réttindi

    Málarameistarinn hefur lokið sveinsprófi og meistaranámi í löggiltri iðngrein.

  • Ráðgjöf um efni og liti

    Ráðleggur og aðstoðar við val á efni og litum fyrir hvert rými.

  • Ígrunduð verðtilboð

    Gerir kostnaðaráætlanir og verðtilboð út frá umfangi og ástandi flata.

  • Efni sem þolir veðrið

    Notar einungis efni og málningu sem stenst íslenska veðráttu.

  • Vönduð undirvinna

    Góð sprungu- og undirvinna tryggir betri endingu.

  • Snyrtilegur frágangur

    Vinnur fagmannlega og snyrtilega, frá undirvinnu til síðustu umferðar.

FRÁ HUGMYND AÐ FULLGERÐU VERKI

Svona gengur verkið fyrir sig

Fimm skref sem hjálpa þér að fá vandað verk og forðast ágreining.

  1. Með góðum fyrirvara

    Skipuleggðu viðhaldið

    Gefðu þér góðan tíma til að leita tilboða. Veturinn hentar vel til að undirbúa sumarverkin.

  2. Fagmaður í verkið

    Finndu málarameistara

    Spurðu um félagsskírteinið eða flettu upp í félagatalinu. Þú getur líka sent félaginu fyrirspurn.

  3. Áður en hafist er handa

    Fáðu skriflegt tilboð

    Tilboðið segir hvað er innifalið í verðinu, hvort efni fylgir og hvernig greiðslum er háttað.

  4. Allt á blaði

    Gerðu verksamning

    Verð, verklýsing, tímasetning og aukaverk. Samningurinn kemur að góðum notum ef upp koma deilur.

  5. Að verki loknu

    Sæktu um endurgreiðslu

    Af vinnu við íbúðarhúsnæði geturðu fengið hluta virðisaukaskattsins endurgreiddan. Kynntu þér skilyrðin hjá Skattinum (opnast í nýjum glugga).

Pensill með blárri málningu borinn á ómálað timbur
VIÐHALD UTANHÚSS
ÁRIÐ HJÁ MÁLARANUM

Hvenær er best að mála?

Utanhússmálun fer að mestu fram yfir sumarið en innanhússverk má vinna allt árið. Byrjaðu að skipuleggja tímanlega.

  • Vetur

    Skipuleggðu sumarverkin

    Leitaðu tilboða í utanhússverk tímanlega. Á sumrin getur reynst erfitt að fá málarameistara með stuttum fyrirvara.

  • Sumar

    Utanhússmálun

    Steyptir veggir, timburverk og gluggar utanhúss eru málaðir þegar veður leyfir.

  • Allt árið

    Innanhússmálun

    Veggi, loft, hurðir og glugga innanhúss má mála hvenær sem hentar.

SKÝRT FRÁ BYRJUN

Tilboð og verksamningur

Hafðu allt skriflegt áður en hafist er handa. Þá vita báðir aðilar að hverju þeir ganga.

TILBOÐ

Í tilboðinu ætti að koma fram

  • Hvaða verkþættir eru innifaldir í verðinu
  • Hvort efniskostnaður er innifalinn
  • Hvernig greiðslum skuli háttað
  • Kostnaður vegna vinnu, véla, áhalda og vinnuaðstöðu
  • Tryggingar, flutningar og önnur samningsbundin gjöld
  • Virðisaukaskattur

Vísaðu í númer samræmdrar verklýsingar svo öll tilboð miði við sama verk.

Samræmdar verklýsingar
VERKSAMNINGUR

Í verksamningnum ætti að koma fram

  • Verð verksins
  • Ítarleg verklýsing með öllum verkþáttum
  • Hvenær verkið hefst og hvenær því skal lokið
  • Hvernig farið er með ófyrirséð aukaverk
  • Hvernig greitt er fyrir aukaverk
  • Annað sem skiptir máli við framkvæmd verksins

Verksamningurinn kemur að góðum notum ef upp koma deilur um verkið.

Sýnishorn af verksamningi
GÁTLISTI VERKKAUPA

Er allt klárt fyrir verkið?

Farðu yfir listann áður en málarinn hefst handa og hakaðu við það sem er komið á hreint.

Ertu óviss um réttindin? Spurðu um félagsskírteinið eða skoðaðu félagatalið.

Hvað er komið á hreint?
RÉTTUR FAGMAÐUR Í VERKIÐ

Er málarinn þinn meistari?

Spurðu verktakann um félagsskírteinið eða flettu honum upp í félagatalinu.

  1. Flettu upp í félagatalinu

    Í félagatalinu eru 109 málarameistarar og samskiptaupplýsingar þeirra.

    Skoða félagatalið
  2. Fáðu tilboð í verkið

    Lýstu verkinu: hvað þarf að mála, hvar og hvenær. Félagið tekur við fyrirspurninni og aðstoðar við næstu skref.

    Senda fyrirspurn
  3. Skilgreindu verkið

    Samræmdar verklýsingar lýsa verkþáttum, mælingu og uppgjöri fyrir algeng verk innanhúss og utanhúss.

    Skoða verklýsingar
TÖKUM NÆSTA SKREF SAMAN

Gefðu hugmyndunum lit.

Fá tilboð í verkið

Hvað ertu að leita að?