Gott handverk byrjar hjá fagmanni.
568 1165mmf@malarar.is

Samræmdar verklýsingar

Sama verk. Sami mælikvarði.

Verklýsingar Málarameistarafélagsins lýsa verkþáttum, mælingu og uppgjöri fyrir algeng verk innanhúss og utanhúss. Vísaðu í númer verklýsingar, t.d. MMF 02.004, í tilboðsbeiðni eða verksamningi svo allir miði við sama verk.

32 VERKLÝSINGAR

Finndu rétta verklýsingu

Opnaðu verklýsingu til að sjá verkþætti og mælireglur, eða sæktu hana sem PDF-skjal.

INNANHÚSS · FLOKKUR 01

Gluggar

Lökkun og málun gamalla og nýrra glugga innanhúss.

6 verklýsingar
MMF01.001Lökkun gamalla glugga innanhúss, tvær umferðir9 verkþættirMæling: Lengdarmetrar

Verkþættir

  1. Hreinsa og skafa lausa málningu.
  2. Slípa.
  3. Grunna með akrýl/alkyd málningu.
  4. Blettspartla með lakkspartli og slípa.
  5. Blettgrunna.
  6. Slípa undir lakk.
  7. Kítta þar sem við á.
  8. Lakka tvær umferðir með akrýl/alkyd lakki glans eða matt.
  9. Gluggaþrif, frágangur og tiltekt.

Mæling og uppgjör

  • Gluggakarmar (án áfellna og umgjarða) reiknast í lengdarmetrum. Gluggapóstar og sprossar reiknast í lengdarmetrum og teljast báðar hliðar. Opnanleg fög reiknast í lengdarmetrum.
  • Taka þarf fram ef gluggar eru fasaðir (rifflaðir).
  • Gluggaföls málast með glugganum að innan.
MMF01.002Málun gamalla glugga innanhúss, tvær umferðir án grunns8 verkþættirMæling: Lengdarmetrar

Verkþættir

  1. Hreinsa og skafa lausa málningu.
  2. Slípa.
  3. Blettspartla með lakkspartli og slípa.
  4. Blettmála.
  5. Slípa lauslega.
  6. Kítta þar sem við á.
  7. Mála tvær umferðir með akrýl/alkyd málningu.
  8. Gluggaþrif, frágangur og tiltekt.

Mæling og uppgjör

  • Gluggakarmar (án áfellna og umgjarða) reiknast í lengdarmetrum. Gluggapóstar og sprossar reiknast í lengdarmetrum og teljast báðar hliðar. Opnanleg fög reiknast í lengdarmetrum.
  • Taka þarf fram ef gluggar eru fasaðir (rifflaðir).
  • Gluggaföls málast með glugganum að innan.
MMF01.003Lökkun nýrra glugga innanhúss12 verkþættirMæling: Lengdarmetrar

Verkþættir

  1. Lakka yfir kvisti, tvær umferðir.
  2. Grunna.
  3. Slípa.
  4. Blettspartla með lakkspartli og slípa.
  5. Blettspartla með lakkspartli og slípa.
  6. Blettmála.
  7. Slípa undir lakk.
  8. Kítta þar sem við á.
  9. Lakka með glans eða möttu lakki.
  10. Slípa létt.
  11. Lakka með glans eða möttu lakki.
  12. Gluggaþrif, frágangur og tiltekt.

Mæling og uppgjör

  • Gluggakarmar (án áfellna og umgjarða) reiknast í lengdarmetrum. Gluggapóstar og sprossar reiknast í lengdarmetrum og teljast báðar hliðar. Opnanleg fög reiknast í lengdarmetrum.
  • Taka þarf fram ef gluggar eru fasaðir (rifflaðir).
  • Gluggaföls málast með glugganum að innan.
MMF01.004Lökkun nýrra glugga innanhúss með heilspörtlun13 verkþættirMæling: Lengdarmetrar

Verkþættir

  1. Lakka yfir kvisti, tvær umferðir.
  2. Grunna með akrýl/alkyd málningu.
  3. Slípa.
  4. Blettspartla með lakkspartli og slípa.
  5. Heilspartla og slípa.
  6. Heilspartla og slípa.
  7. Grunna.
  8. Slípa undir lakk.
  9. Kítta þar sem við á.
  10. Lakka með akrýl/alkyd lakki glans eða matt.
  11. Slípa létt og afþurrka með klút.
  12. Lakka með akrýl/alkyd lakki glans eða matt.
  13. Gluggaþrif, frágangur og tiltekt.

Mæling og uppgjör

  • Gluggakarmar (án áfellna og umgjarða) reiknast í lengdarmetrum. Gluggapóstar og sprossar reiknast í lengdarmetrum og teljast báðar hliðar. Opnanleg fög reiknast í lengdarmetrum.
  • Taka þarf fram ef gluggar eru fasaðir (rifflaðir).
  • Gluggaföls málast með glugganum að innan.
MMF01.005Lökkun gamalla glugga innanhúss með heilspörtlun14 verkþættirMæling: Lengdarmetrar

Verkþættir

  1. Hreinsa og skafa lausa málningu.
  2. Slípa.
  3. Grunna.
  4. Slípa.
  5. Blettspartla með lakkspartli og slípa.
  6. Heilspartla og slípa.
  7. Heilspartla og slípa.
  8. Grunna.
  9. Slípa undir lakk.
  10. Kítta þar sem við á.
  11. Lakka með lakki glans eða matt.
  12. Slípa létt.
  13. Lakka með lakki glans eða matt.
  14. Gluggaþrif, frágangur og tiltekt.

Mæling og uppgjör

  • Gluggakarmar (án áfellna og umgjarða) reiknast í lengdarmetrum. Gluggapóstar og sprossar reiknast í lengdarmetrum og teljast báðar hliðar. Opnanleg fög reiknast í lengdarmetrum.
  • Taka þarf fram ef gluggar eru fasaðir (rifflaðir).
  • Gluggaföls málast með glugganum að innan.
MMF01.006Lökkun gamalla glugga innanhúss13 verkþættirMæling: Lengdarmetrar

Verkþættir

  1. Hreinsa og skafa lausa málningu.
  2. Slípa.
  3. Grunna.
  4. Slípa.
  5. Blettspartla með lakkspartli og slípa.
  6. Heilspartla og slípa.
  7. Grunna.
  8. Slípa undir lakk.
  9. Kítta í rifur.
  10. Lakka með glans eða möttu lakki.
  11. Slípa létt.
  12. Lakka með glans eða möttu lakki.
  13. Gluggaþrif, frágangur og tiltekt.

Mæling og uppgjör

  • Gluggakarmar (án áfellna og umgjarða) reiknast í lengdarmetrum. Gluggapóstar og sprossar reiknast í lengdarmetrum og teljast báðar hliðar. Opnanleg fög reiknast í lengdarmetrum.
  • Taka þarf fram ef gluggar eru fasaðir (rifflaðir).
  • Gluggaföls málast með glugganum að innan.
INNANHÚSS · FLOKKUR 02

Loft og veggir

Endurmálun, sandspörtlun, hraunáferð og gifsfletir.

16 verklýsingar
MMF02.001Endurmálun lofta innanhúss, tvær umferðir6 verkþættirMæling: Fermetrar

Verkþættir

  1. Skafa upp skemmdir, hreinsa og verja fleti.
  2. Blettspartla og slípa.
  3. Blettgrunna.
  4. Slípa lauslega.
  5. Mála tvær umferðir með akrýl málningu.
  6. Frágangur og tiltekt.

Mæling og uppgjör

  • Loft mælast í fermetrum.
  • Þau op sem eru stærri en 2 m² dragast frá þ.e. það sem umfram er 2 m². (þ.e.a.s. 10 m² op, þá dregst 8 m² frá og tveir standa eftir, vegna vinnu við frágang við op, t.d. gluggaop)
  • Kantar inn að gluggum mælast með loftum þ.e. ljósop gluggans er minnkað sem nemur kantinum.
MMF02.002Endurmálun lofta innanhúss, þrjár umferðir6 verkþættirMæling: Fermetrar

Verkþættir

  1. Skafa upp skemmdir, hreinsa og verja fleti.
  2. Blettspartla og slípa.
  3. Blettgrunna.
  4. Slípa lauslega.
  5. Mála tvær umferðir með akrýl málningu.
  6. Frágangur og tiltekt.

Mæling og uppgjör

  • Loft mælast í fermetrum.
  • Þau op sem eru stærri en 2 m² dragast frá þ.e. það sem umfram er 2 m². (þ.e.a.s. 10 m² op, þá dregst 8 m² frá og tveir standa eftir, vegna vinnu við frágang við op, t.d. gluggaop)
  • Kantar inn að gluggum mælast með loftum, þ.e. ljósop gluggans er minnkað sem nemur kantinum.
MMF02.003Endurmálun veggja innanhúss, þrjár umferðir6 verkþættirMæling: Fermetrar

Verkþættir

  1. Skafa upp skemmdir, hreinsa og verja fleti.
  2. Blettspartla og slípa.
  3. Blettgrunna.
  4. Slípa lauslega.
  5. Mála þrjár umferðir með akrýlmálningu.
  6. Frágangur og tiltekt.

Mæling og uppgjör

  • Veggir mælast í fermetrum.
  • Þau op sem eru stærri en 2 m² dragast frá þ.e. það sem umfram er 2 m². (þ.e.a.s. 10 m² op, þá dregst 8 m² frá og tveir standa eftir, vegna vinnu við frágang við op, t.d. gluggaop, o.s.frv.)
  • Kantar inn að gluggum mælast með veggjum þ.e. ljósop gluggans er minnkað sem nemur kantinum.
MMF02.004Endurmálun veggja innanhúss, tvær umferðir7 verkþættirMæling: Fermetrar

Verkþættir

  1. Skafa upp skemmdir, hreinsa og verja fleti.
  2. Blettspartla og slípa.
  3. Blettgrunna.
  4. Slípa lauslega.
  5. Mála eina umferð með akrýl málningu.
  6. Mála eina umferð með akrýl málningu.
  7. Frágangur og tiltekt.

Mæling og uppgjör

  • Veggir mælast í fermetrum.
  • Þau op sem eru stærri en 2 m² dragast frá þ.e. það sem umfram er 2 m². (þ.e.a.s. 10 m² op, þá dregst 8 m² frá og tveir standa eftir, vegna vinnu við frágang við op, t.d. gluggaop, hurðaop o.s.frv.)
  • Kantar inn að gluggum mælast með veggjum þ.e. ljósop gluggans er minnkað sem nemur kantinum.
MMF02.005Sandspörtlun demantslípaðra lofta9 verkþættirMæling: Fermetrar

Verkþættir

  1. Holufylla og skafa.
  2. Slípa lauslega.
  3. Sandspartla eina umferð.
  4. Slípa lauslega.
  5. Sandspartla eina umferð.
  6. Slípa lauslega.
  7. Sandspartla eina umferð.
  8. Lokaslípun.
  9. Frágangur og tiltekt.

Mæling og uppgjör

  • Loft mælast í fermetrum.
  • Þau op sem eru stærri en 2 m² dragast frá þ.e. það sem umfram er 2 m². (þ.e.a.s. 10 m² op, þá dregst 8 m² frá og tveir standa eftir, vegna vinnu við frágang við op, t.d. gluggaop, hurðaop o.s.frv.)
  • Kantar inn að gluggum mælast með veggjum þ.e. ljósop gluggans er minnkað sem nemur kantinum.
  • Úthornalistar ekki innifaldir í fermetraverði og þurfa að mælast sér sem heildarlengdarmetrar.
MMF02.006Sandspörtlun demantslípaðra veggja9 verkþættirMæling: Fermetrar

Verkþættir

  1. Holufylla og skafa.
  2. Slípa lauslega.
  3. Sandspartla eina umferð.
  4. Slípa lauslega.
  5. Sandspartla eina umferð.
  6. Slípa lauslega.
  7. Sandspartla eina umferð.
  8. Lokaslípun.
  9. Frágangur og tiltekt.

Mæling og uppgjör

  • Veggir mælast í fermetrum.
  • Þau op sem eru stærri en 2 m² dragast frá þ.e. það sem umfram er 2 m². (þ.e.a.s. 10 m² op, þá dregst 8 m² frá og tveir standa eftir, vegna vinnu við frágang við op, t.d. gluggaop, o.s.frv.)
  • Kantar inn að gluggum mælast með veggjum þ.e. ljósop gluggans er minnkað sem nemur kantinum.
  • Úthornalistar ekki innifaldir í fermetraverði og þurfa að mælast sér sem heildarlengdarmetrar.
MMF02.007Sandspörtlun grófhúðaðra veggja7 verkþættirMæling: Fermetrar

Verkþættir

  1. Steinslípa.
  2. Sópa burt ryk.
  3. Sandspartla eina umferð.
  4. Slípa lauslega.
  5. Sandspartla eina umferð.
  6. Lokaslípun.
  7. Frágangur og tiltekt.

Mæling og uppgjör

  • Veggir mælast í fermetrum.
  • Þau op sem eru stærri en 2 m² dragast frá þ.e. það sem umfram er 2 m². (þ.e.a.s. 10 m² op, þá dregst 8 m² frá og tveir standa eftir, vegna vinnu við frágang við op, t.d. gluggaop, hurðaop o.s.frv.)
  • Kantar inn að gluggum mælast með veggjum þ.e. ljósop gluggans er minnkað sem nemur kantinum.
  • Úthornalistar ekki innifaldir í fermetraverði og þurfa að mælast sér sem heildarlengdarmetrar.
MMF02.008Sandspörtlun grófhúðaðra lofta6 verkþættirMæling: Fermetrar

Verkþættir

  1. Steinslípa.
  2. Sandspartla eina umferð.
  3. Slípa lauslega.
  4. Sandspartla eina umferð.
  5. Lokaslípun.
  6. Frágangur og tiltekt.

Mæling og uppgjör

  • Loft mælast í fermetrum.
  • Þau op sem eru stærri en 2 m² dragast frá þ.e. það sem umfram er 2 m². (þ.e.a.s. 10 m² op, þá dregst 8 m² frá og tveir standa eftir, vegna vinnu við frágang við op, t.d. gluggaop, o.s.frv.)
  • Kantar inn að gluggum mælast með loftum, þ.e. ljósop gluggans er minnkað sem nemur kantinum.
  • Úthornalistar ekki innifaldir í fermetraverði og þurfa að mælast sér sem heildarlengdarmetrar.
MMF02.009Málun sandspartlaðra lofta7 verkþættirMæling: Fermetrar

Verkþættir

  1. Grunna með akrýl grunni.
  2. Slípa lauslega.
  3. Blettspartla og slípa.
  4. Blettgrunna.
  5. Slípa lauslega fyrir lokaumferð.
  6. Mála tvær umferðir með akrýl málningu.
  7. Frágangur og tiltekt.

Mæling og uppgjör

  • Loft mælast í fermetrum.
  • Þau op sem eru stærri en 2 m² dragast frá þ.e. það sem umfram er 2 m². (þ.e.a.s. 10 m² op, þá dregst 8 m² frá og tveir standa eftir, vegna vinnu við frágang við op, t.d. gluggaop, o.s.frv.)
  • Kantar inn að gluggum mælast með loftum, þ.e. ljósop gluggans er minnkað sem nemur kantinum.
MMF02.010Málun sandspartlaðra veggja7 verkþættirMæling: Fermetrar

Verkþættir

  1. Grunna með akrýl grunni.
  2. Slípa lauslega.
  3. Blettspartla og slípa.
  4. Blettgrunna.
  5. Slípa lauslega.
  6. Mála tvær umferðir með akrýl málningu.
  7. Frágangur og tiltekt.

Mæling og uppgjör

  • Veggir mælast í fermetrum.
  • Þau op sem eru stærri en 2 m² dragast frá þ.e. það sem umfram er 2 m². (þ.e.a.s. 10 m² op, þá dregst 8 m² frá og tveir standa eftir, vegna vinnu við frágang við op, t.d. gluggaop, hurðaop o.s.frv.)
  • Kantar inn að gluggum mælast með veggjum þ.e. ljósop gluggans er minnkað sem nemur kantinum.
MMF02.011Sandspörtlun grófhúðaðra lofta og hraunáferð5 verkþættirMæling: Fermetrar

Verkþættir

  1. Steinslípa.
  2. Sandspartla tvær umferðir.
  3. Slípa lauslega.
  4. Hraunáferð með sandspartli.
  5. Frágangur og tiltekt.

Mæling og uppgjör

  • Loft mælast í fermetrum.
  • Þau op sem eru stærri en 2 m² dragast frá þ.e. það sem umfram er 2 m². (þ.e.a.s. 10 m² op, þá dregst 8 m² frá og tveir standa eftir, vegna vinnu við frágang við op, t.d. gluggaop, o.s.frv.)
  • Kantar inn að gluggum mælast með loftum, þ.e. ljósop gluggans er minnkað sem nemur kantinum.
  • Úthornalistar ekki innifaldir í fermetraverði og þurfa að mælast sér sem heildarlengdarmetrar.
MMF02.012Sandspörtlun demantslípaðra lofta og hraunáferð8 verkþættirMæling: Fermetrar

Verkþættir

  1. Holufylla og skafa.
  2. Slípa lauslega.
  3. Sandspartla eina umferð.
  4. Slípa lauslega.
  5. Sandspartla eina umferð.
  6. Slípa lauslega.
  7. Hraunáferð með sandspartli.
  8. Frágangur og tiltekt.

Mæling og uppgjör

  • Loft mælast í fermetrum.
  • Þau op sem eru stærri en 2 m² dragast frá þ.e. það sem umfram er 2 m². (þ.e.a.s. 10 m² op, þá dregst 8 m² frá og tveir standa eftir, vegna vinnu við frágang við op, t.d. gluggaop, o.s.frv.)
  • Kantar inn að gluggum mælast með loftum, þ.e. ljósop gluggans er minnkað sem nemur kantinum.
  • Úthornalistar ekki innifaldir í fermetraverði og þurfa að mælast sér sem heildarlengdarmetrar.
MMF02.013Málun sandspartlaðra lofta með hraunáferð4 verkþættirMæling: Fermetrar

Verkþættir

  1. Grunna með akrýl grunni.
  2. Slípa lauslega.
  3. Mála tvær umferðir með akrýl málningu.
  4. Frágangur og tiltekt.

Mæling og uppgjör

  • Loft mælast í fermetrum.
  • Þau op sem eru stærri en 2 m² dragast frá þ.e. það sem umfram er 2 m². (þ.e.a.s. 10 m² op, þá dregst 8 m² frá og tveir standa eftir, vegna vinnu við frágang við op, t.d. gluggaop, o.s.frv.)
  • Kantar inn að gluggum mælast með loftum, þ.e. ljósop gluggans er minnkað sem nemur kantinum.
MMF02.014Gifsveggir og loft spörtlun og málun13 verkþættirMæling: Fermetrar

Verkþættir

  1. Leggja pappírsborða í límspartl.
  2. Spartla samskeyti og skrúfugöt.
  3. Slípa lauslega.
  4. Spartla samskeyti og skrúfugöt.
  5. Lokaslípun.
  6. Grunna með akrýlgrunni.
  7. Slípa lauslega.
  8. Mála eina umferð með akrýlmálningu.
  9. Slípa lauslega.
  10. Blettspartla.
  11. Blettmála.
  12. Mála eina umferð með akrýlmálningu.
  13. Frágangur og tiltekt.

Mæling og uppgjör

  • Veggir mælast í fermetrum.
  • Þau op sem eru stærri en 2 m² dragast frá þ.e. það sem umfram er 2 m². (þ.e.a.s. 10 m² op, þá dregst 8 m² frá og tveir standa eftir, vegna vinnu við frágang við op, t.d. gluggaop, o.s.frv.)
  • Kantar inn að gluggum mælast með veggjum eða loftum, þ.e. ljósop gluggans er minnkað sem nemur kantinum.
  • Úthornalistar ekki innifaldir í fermetraverði og þurfa að mælast sér sem heildarlengdarmetrar.
MMF02.015Gifsveggir og loft heilspörtlun13 verkþættirMæling: Fermetrar

Verkþættir

  1. Leggja pappírsborða í spartl.
  2. Spartla samskeyti eina umferð.
  3. Slípa lauslega.
  4. Heilspartla eina umferð.
  5. Lokaslípun.
  6. Grunna með akrýlgrunni.
  7. Blettspartla.
  8. Blettmála.
  9. Slípa lauslega.
  10. Mála eina umferð með akrýlmálningu.
  11. Slípa lauslega.
  12. Mála eina umferð með akrýlmálningu.
  13. Frágangur og tiltekt.

Mæling og uppgjör

  • Veggir mælast í fermetrum.
  • Þau op sem eru stærri en 2 m² dragast frá þ.e. það sem umfram er 2 m². (þ.e.a.s. 10 m² op, þá dregst 8 m² frá og tveir standa eftir, vegna vinnu við frágang við op, t.d. gluggaop, o.s.frv.)
  • Kantar inn að gluggum mælast með veggjum eða loftum, þ.e. ljósop gluggans er minnkað sem nemur kantinum.
  • Úthornalistar ekki innifaldir í fermetraverði og þurfa að mælast sér sem heildarlengdarmetrar.
MMF02.016Gifsloft hljóðeinangrandi8 verkþættirMæling: Fermetrar

Verkþættir

  1. Spartla tvær umferðir í skrúfugöt.
  2. Slípun.
  3. Grunna með akrýlgrunni.
  4. Slípa lauslega.
  5. Mála eina umferð með akrýlmálningu.
  6. Slípa lauslega fyrir lokaumferð.
  7. Mála eina umferð með akrýlmálningu.
  8. Frágangur og tiltekt.

Mæling og uppgjör

  • Veggir mælast í fermetrum.
  • Þau op sem eru stærri en 2 m² dragast frá þ.e. það sem umfram er 2 m². (þ.e.a.s. 10 m² op, þá dregst 8 m² frá og tveir standa eftir, vegna vinnu við frágang við op, t.d. gluggaop, o.s.frv.)
  • Kantar inn að gluggum mælast með loftum, þ.e. ljósop gluggans er minnkað sem nemur kantinum.
  • Úthornalistar ekki innifaldir í fermetraverði og þurfa að mælast sér sem heildarlengdarmetrar.
INNANHÚSS · FLOKKUR 03

Hurðir og karmar

Lökkun hurða, karma og lista innanhúss.

5 verklýsingar
MMF03.001Lökkun gamalla hurða og karma innanhúss, ein umferð9 verkþættirMæling: Fermetrar og lengdarmetrar

Verkþættir

  1. Hreinsa og skafa lausa málningu.
  2. Slípa.
  3. Grunna.
  4. Blettspartla með lakkspartli og slípa.
  5. Blettgrunna.
  6. Slípa undir lakk.
  7. Kítta þar sem við á.
  8. Lakka með glans eða möttu lakki.
  9. Frágangur og tiltekt.

Mæling og uppgjör

  • Hurðarspjöld mælast í fermetrum, mæla skal báðar hliðar og kanta.
  • Taka þarf fram hvort hurðarspjöld séu slétt, yfirfelld eða með spjöldum.
  • Karmar mælast í lengdarmetrum.
  • Taka þarf fram ef karmar eru með hvelfdum eða margbrotnum áfellum (gereftum).
  • Gefa þarf upp breidd karms og áfellu (gerefti).
MMF03.002Lökkun gamalla hurða og karma innanhúss, tvær umferðir12 verkþættirMæling: Fermetrar og lengdarmetrar

Verkþættir

  1. Hreinsa og skafa lausa málningu.
  2. Slípa.
  3. Grunna.
  4. Blettspartla með lakkspartli og slípa.
  5. Blettspartla með lakkspartli og slípa.
  6. Blettgrunna.
  7. Slípa undir lakk.
  8. Kítta þar sem við á.
  9. Lakka með glans eða möttu lakki.
  10. Slípa lauslega.
  11. Lakka með glans eða möttu lakki.
  12. Frágangur og tiltekt.

Mæling og uppgjör

  • Hurðarspjöld mælast í fermetrum, mæla skal báðar hliðar og kanta.
  • Taka þarf fram hvort hurðarspjöld séu slétt, yfirfelld eða með spjöldum.
  • Karmar mælast í lengdarmetrum.
  • Taka þarf fram ef karmar eru með hvelfdum eða margbrotnum áfellum (gereftum).
  • Gefa þarf upp breidd karms og áfellu (gerefti).
MMF03.003Lökkun nýrra hurða, karma og lista innanhúss, tvær umferðir12 verkþættirMæling: Fermetrar og lengdarmetrar

Verkþættir

  1. Lakka yfir kvisti, tvær umferðir.
  2. Grunna með akrýl/alkyd málningu.
  3. Slípa.
  4. Blettspartla með lakkspartli og slípa.
  5. Blettspartla með lakkspartli og slípa.
  6. Blettmála.
  7. Slípa undir lakk.
  8. Kítta þar sem við á.
  9. Lakka með glans eða möttu lakki.
  10. Slípa létt.
  11. Lakka með glans eða möttu lakki.
  12. Frágangur og tiltekt.

Mæling og uppgjör

  • Hurðarspjöld mælast í fermetrum, mæla skal báðar hliðar og kanta.
  • Taka þarf fram hvort hurðarspjöld séu slétt, yfirfelld eða með spjöldum.
  • Karmar og listar mælast í lengdarmetrum.
  • Taka þarf fram ef karmar eru með hvelfdum eða margbrotnum áfellum (gereftum).
  • Gefa þarf upp breidd karms og áfellu (gerefti).
MMF03.004Lökkun nýrra hurða, karma og lista innanhúss, heilspörtlun13 verkþættirMæling: Fermetrar og lengdarmetrar

Verkþættir

  1. Lakka yfir kvisti, tvær umferðir.
  2. Grunna.
  3. Slípa.
  4. Blettspartla með lakkspartli og slípa.
  5. Heilspartla og slípa.
  6. Heilspartla og slípa.
  7. Grunna.
  8. Slípa undir lakk.
  9. Kítta þar sem við á.
  10. Lakka með glans eða möttu lakki.
  11. Slípa létt og afþurrka með klút.
  12. Lakka með glans eða möttu lakki.
  13. Frágangur og tiltekt.

Mæling og uppgjör

  • Hurðarspjöld mælast í fermetrum, mæla skal báðar hliðar og kanta.
  • Taka þarf fram hvort hurðarspjöld séu slétt, yfirfelld eða með spjöldum.
  • Karmar og listar mælast í lengdarmetrum.
  • Taka þarf fram ef karmar eru með hvelfdum eða margbrotnum áfellum (gereftum).
  • Gefa þarf upp breidd karms og áfellu (gerefti).
MMF03.005Lökkun gamalla hurða og karma innanhúss með heilspörtlun14 verkþættirMæling: Fermetrar og lengdarmetrar

Verkþættir

  1. Hreinsa og skafa lausa málningu.
  2. Slípa.
  3. Grunna.
  4. Slípa.
  5. Blettspartla með lakkspartli og slípa.
  6. Heilspartla og slípa.
  7. Heilspartla og slípa.
  8. Grunna.
  9. Slípa undir lakk.
  10. Kítta þar sem við á.
  11. Lakka með glans eða möttu lakki.
  12. Slípa létt.
  13. Lakka með glans eða möttu lakki.
  14. Frágangur og tiltekt.

Mæling og uppgjör

  • Hurðarspjöld mælast í fermetrum, mæla skal báðar hliðar og kanta.
  • Taka þarf fram hvort hurðarspjöld séu slétt, yfirfelld eða með spjöldum.
  • Karmar mælast í lengdarmetrum.
  • Taka þarf fram ef karmar eru með hvelfdum eða margbrotnum áfellum (gereftum).
  • Gefa þarf upp breidd karms og áfellu (gerefti).
UTANHÚSS · FLOKKUR 05

Steinfletir

Endurmálun og nýmálun steyptra flata.

2 verklýsingar
MMF05.001Endurmálun steinflata9 verkþættirMæling: Fermetrar

Verkþættir

  1. Háþrýstiþvottur (150-320 bar).
  2. Hreinsa og skafa lausa málningu.
  3. Yfirfara steypuskemmdir og lausan múr á flötum, köntum og vatnsbrettum, loka sprungum, viðgerð á járnpunktum og járnum (við miklar skemmd skal fá múrara til að sinna þeim verklið.)
  4. Vatnsverja alla viðgerðarfleti.
  5. Grunna yfir viðgerðarfleti og beran stein.
  6. Þykkhúð á alla lárétta fleti og fínar sprungur.
  7. Blettun yfir viðgerðarfleti.
  8. Mála tvær umferðir (fer eftir efnisvali og málningarkerfum).
  9. Frágangur og þrif.

Mæling og uppgjör

  • Veggir mælast í fermetrum.
  • Þau op sem eru stærri en 2 m² dragast frá þ.e. það sem umfram er 2 m². (þ.e.a.s. 10 m² op, þá dregst 8 m² frá og tveir standa eftir, vegna vinnu við frágang við op, t.d. gluggaop, o.s.frv.)
  • Kantar inn að gluggum mælast með veggjum þ.e. ljósop gluggans er minnkað sem nemur kantinum.
MMF05.002Nýmálun steinflata7 verkþættirMæling: Fermetrar

Verkþættir

  1. Léttur háþrýstiþvottur (150-320 bar eftir þörfum)
  2. Steinrif á veggflötum og köntum.
  3. Yfirfara veggfleti fyrir málun. Gæta að rýrnunarsprungum, steypuhreiðri og járni sem liggur of utarlega í yfirborðssteypu. Fá álit múrara áður en slíkt er málað.
  4. Vatnsverja alla steypufleti.
  5. Grunnun allra steyptra flata.
  6. Mála tvær umferðir (fer eftir efnisvali og málningarkerfum).
  7. Frágangur og þrif.

Mæling og uppgjör

  • Veggir mælast í fermetrum.
  • Þau op sem eru stærri en 2 m² dragast frá þ.e. það sem umfram er 2 m². (þ.e.a.s. 10 m² op, þá dregst 8 m² frá og tveir standa eftir, vegna vinnu við frágang við op, t.d. gluggaop, o.s.frv.)
  • Kantar inn að gluggum mælast með veggjum þ.e. ljósop gluggans er minnkað sem nemur kantinum.
UTANHÚSS · FLOKKUR 06

Tréverk

Timburverk, olíubornar hurðir og gluggar, pallar og skjólveggir.

3 verklýsingar
MMF06.001Endurmálun timburverks: gluggar, þakkantar o.fl.8 verkþættirMæling: Lengdarmetrar

Verkþættir

  1. Rakamæla (verður að vera undir 17%).
  2. Hreinsa og skafa lausa málningu.
  3. Slípa.
  4. Metta beran við með grunnolíu.
  5. Grunnun.
  6. Yfirfara kíttun milli steins og viðar (á við um glugga).
  7. Málun tvær umferðir með viðarvörn (auka umferð yfir botnlista á gluggum).
  8. Glerþrif, tiltekt og frágangur.

Mæling og uppgjör

  • Gluggakarmar (án áfellna og umgjarða) reiknast í lengdarmetrum. Gluggapóstar og sprossar reiknast í lengdarmetrum og teljast báðar hliðar. Opnanleg fög reiknast í lengdarmetrum ásamt köntum (reiknast sér í lengdarmetrum).
  • Taka þarf fram ef gluggar eru fasaðir (rifflaðir).
MMF06.002Olíubornar hurðar og gluggar5 verkþættirMæling: Tilboð eða tímavinna

Verkþættir

  1. Hreinsa og skafa lausa málningu.
  2. Grámahreinsun við mikinn gráma.
  3. Slípa.
  4. Olíubera 2-3 umferðir (eða þangað til að viður er fullmettaður), umframolía þurrkuð af á milli umferða.
  5. Glerþrif, tiltekt og frágangur.

Mæling og uppgjör

  • Reiknast samkvæmt tilboði eða í tímavinnu.
  • Gluggakarmar (án áfellna og umgjarða) reiknast í lengdarmetrum. Gluggapóstar og sprossar reiknast í lengdarmetrum og teljast báðar hliðar. Opnanleg fög reiknast í lengdarmetrum.
  • Taka þarf fram ef gluggar eru fasaðir (rifflaðir).
MMF06.003Pallar og skjólveggir6 verkþættirMæling: Fermetrar

Verkþættir

  1. Léttur háþrýstiþvottur.
  2. Grámahreinsun og þvottur.
  3. Slípun ýfinga.
  4. Yfirfara skrúfur og nagla.
  5. Pallaolía, hálfþekjandi eða fullþekjandi.
  6. Frágangur og tiltekt.

Mæling og uppgjör

  • Pallar og skjólveggir eru reiknaðir samkvæmt snertiflötum flata í fermetrum.
  • Taka þarf fram ef málað er bakhlið tvöfaldra skjólveggja, en það reiknast sérstaklega.

TÖKUM NÆSTA SKREF SAMAN

Gefðu hugmyndunum lit.

Fá tilboð í verkið

Hvað ertu að leita að?